HULDUHÓLAR

Hulduhólar
i Mosfellsbæ standa neðan við Vesturlandsveg (þjóðveg 1) í um 15 km
fjarlægð frá miðborg Reykjavíkur. Þar var áður fyrr bóndabýli byggt
út úr landi Lágafells og þar sem áður var fjós og hlaða eru nú
vinnustofur Steinunnar Marteinsdóttur myndlistarkonu þar sem hún
vinnur bæði leirverk og málverk. Á neðri hæð er gengið inn í
keramikverkstæðið og galleríið. Á efri hæð er einnig stór og björt
vinnustofa sem er einnig notuð sem sýningarsalur þegar þess er þörf
ásamt stórri stofu á neðri hæð. Á Hulduhólum er unnið að
listaverkum og haldnar myndlistarsýningar. Einnig heldur Steinunn
af og til námskeið í keramik á verkstæðinu.
